Fundargerðir


13.03.2008

Stjórnarfundur haldinn í HRFÍ fimmtudaginn 13.03.2008 kl.19.00
Mættir eru Rakel, Fríður, Magga og Líney.


  Komið var með tilllögu um að hafa tengiliði í deildinni frá hverri stærð fyrir sig.

·         Talað var um að kynna nýja bæklinginn okkar fyrir félagsmönnum og fara yfir ársskýrsluna.

·         Magga ætlar að tala við stjórn HRFÍ um að eitthvað sé ekki í lagi með skráningar í kerfinu hjá þeim.  Ekki kemur fram hverjir hafa greitt hjónagjald og fleira.

·         Fríður segir að allt sé komið inná síðuna sem á að vera þar.

·         Ákveðið var að Fríður verður fundarstjóri á aðalfundinum, Rakel ritari, Líney les ársskýrsluna og Magga les fjárhagsstöðu deildarinnar.

·         Fundi slitið 19.50

 Ritari: Rakel Rán Guðjónsdóttir