Fundargerðir


11.03.2010

Stjórnarfundur á Skrifstofu HRFI eftir aðalfund þann 11.03.2010 kl. 21.40.

Þetta er fyrsti fundur með nýrri stjórn, nýja stjórn skipa: Rakel Rán Guðjónsdóttir, Fríður Esther Pétursdóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Margrét Kjartansdóttir og Sigrún Valdimarsdóttir.

    * Ákveðið var að skipta með sér hlutverkum og fóru þau þannig:  Margrét verður áfram formaður, Fríður sér um heimasíðuna og allt sem henni kemur við, Rakel verður ritari og Sigrún verður gjaldkeri  
    * Talað var um hvort það eigi að vera að kaupa áður umræddan gagnagrunn eða hvort það ætti bara að uppfæra og betrumbæta þennann sem nú er fyrir og það var ákveðið að bíða með þessa umræðu þangað til á næsta fundi.

Fundi slitið 22.00 og var ákveðið að hittast næst 21.03.2010.