Fundargerðir


24.11.2014

 

Fundurinn haldinn Ásbúð 23, kl.19:00

Mættar eru :

Líney B. Ívarsdóttir

Margrét Kjartansdóttir

Sigrún Valdimarsdóttir

Kolbrún B. Snorradóttir

María Tamimi

 

1.       Fundagerð seinasta fundar lesin yfir og samþykkt.

2.       Deildarsýningin rædd. Keyptum flugmiða fyrir dómarann. Magga ætlar að athuga með gistingu fyrir hann.

 

3.       Erum búnar að finna vefsíður með rósettum sem við ætlum að skoða fyrir deildarsýninguna.

 

4.       Búið að panta Korputorg fyrir deildarsýninguna. Líney ætlar að panta fyrir sýningarþjálfanirnar.

 

5.       Ræddum um uppskeruhátíð deildarinnar. Salurinn er laus og stefnum við að því að halda hana laugardaginn 7.febrúar 2015 og verður Disco þema. Skiptum við með okkur verkum.

 

Fundi slitið 22:00

Ritari Sigrún Valdimarsdóttir