Fundargerðir


16.02.2026

Fundur stjórnar 16. febrúar 2026

Skipuleggja fyrir tvöfalda sýningu 2026:

Hótel: Galyna verður á Hótel 201 í tvær nætur og svo eina nótt í Keflavík.
Helle verður á sama hóteli í fjórar nætur. Verður á eigin vegum eftir sýninguna.

Hringstjóri og ritari – Anna María og kannski tekur hún með sér ritara
Sýningarstjóri – Anna María, Magga reddari
Dýralæknir sýningar – Tóta
Senda tilkynningu til Mast með minnst 14 daga fyrirvara

Dýrheimar gera salinn kláran. Ætlum að panta salinn á föstudeginum. Muna að láta Dýrheima vita að þeir geti sett upp sýninguna fyrir okkur. Mætum við uppsetningu kl. 14 á föstudeginum.
Ath hvort Dýrheimar eigi teppi eða hvort við leigjum teppi frá Hrfí.

Senda Hrfí dagskrána eftir lokaskráningu og eftir að við höfum fengið fjöldann frá þeim

Dómaragjafir og verðlaun eru komin. Rósettur á leið í pósti.

Deildin mun gefa fyrstu fjóru sætunum í BIS auka verðlaun. Gefa gjafabréf fyrir fyrsta sætið í Bis jr, öldungar, ræktunarhópur. Gjafabréf úr sælkerabúðinni. BIS hvolpur fær þá gjafapakka. Magga talar við Ingibjörgu fyrir hvolpana.

 

 

Ritari:
Líney Björk Ívardóttir