Fundargerðir


01.09.2025

Fundur stjórnar 1. 9.2025 – Allir mættir

Settu upp dagskrána fyrir deildarsýningu og fórum yfir gátlistann.

Deildarsýning 13. september, salur Dýrheima (Royal canin) Víkurhvarfi 5
Dómari: Katerina Cechova

Dagskrá:

09:00  Hvolpar, yngri og eldri flokkur:

Dvergschnauzer svartur (5)
Dvergschauzer svart/silfur (3)
Dvergschnauzer hvítur (2)
Dvergschnauzer piparog salt (2)

Besti hvolpur 3-6 mánaða
Besti hvolpur 6-9 mánaða


Standard schnauzer pipar og salt (1)
Dvergschnauzer svartur (24)

11:30 Hlé

12:00   Dvergschauzer svart/silfur (22)
Dvergschnauzer hvítur (11)
Dvergschnauzer pipar og salt (8)

Úrslit

Besti ræktunarhópur
               Besti öldungur
               Besti ungliði
               BEST IN SHOW

Stjórn var sammála um að standa ekki fyrir sameiginlegum kvöldverði með öllum deildarmeðlimum að þessu sinni eftir sýningu, heldur færi bara stjórn með dómara og starfsfólki út að borða á La Primavera í Hörpunni um kvöldið.

Ræddum að á næsta ári yrði afmælissýning en þá verður deildina 20 ára. Gaman væri að hafa einhverjar veitingar í boði þá fyrir meðlimi.

Einnig ræddum við að fækka deildarsýningum niður í eina á næsta ári. Ekki var neitt ákveðið varðandi það.

ritari: Líney Björk Ívarsdóttir