Fundargerðir


24.03.2025

Skýrsla stjórnar fyrir árið 2024

Stjórn:
Margrét Ásgeirsdóttir formaður
Líney Björk Ívarsdóttir ritari
Helena Ruth Hafsteinsdóttir gjaldkeri
María Björg Tamimi meðstjórnandi
Anna Gréta Sveinsdóttir meðstjórnandi

 

Síðasti aðalfundur var haldinn 20.mars 2024.
Stjórn hefur fundað alls átta sinnum frá síðasta aðalfundi.
Á ársfundi 2024, verður kosið um þrjú sæti til tveggja ára.

 

Viðburðir

Haldnar voru tvær deildarsýningar á árinu, ein í apríl og önnur í október. Styrktaraðili Schnauzerdeildar er Royal Canin Dýrheimar og voru sýningarnar haldnar í húsnæði þeirra.

Deildin stóð fyrir sýningarþjálfunum á árinu þar sem Birta Dröfn sá um þjálfunina. Sýningarþjálfanirnar voru ágætlega sóttar en þegar líða fór á árið var dræm þátttaka og ákveðið var að hvíla þjálfanirnar.

Uppskeruhátíð var haldin í febrúar þar sem heiðraðir voru stigahæstu hundar og ræktendur. Á uppskerunni fór fram uppboð á vörum til styrktar deildinni.

Framundan

Á döfinni fyrir árið 2025 verður haldin deildarsýning 5. apríl. Ekki hefur verið sótt um aðra sýningu eins og er, en stefnan er að hafa aðra sýningu í haust.

 

 

 

 

 

Augnskoðun

Alls fóru 127 dvergschnauzerar í augnskoðun á árinu. Tuttugu og fjórir greindust með Distichiasi og fjórir með cataract.

 

Mjaðma og olbogamyndir:

Engar upplýsingar eru um hunda sem fóru í mjaðma- og/eða olnbogamyndatöku á árinu inn á hundavefur.is.

 

Yfirlit yfir got og innflutning fyrir árið 2024


Got

Á almanaksárinu fæddust samtals: 212 dvergschnauzer hvolpar, 13 standard og enginn risi.

Svartur dvergur – 19 got með samtals 80 hvolpum
Svart/silfur – 13 got með 62 hvolpum
Pipar og salt – 7 got með 39 hvolpum
Hvítur – 8 got með 31 hvolpi

Standard schnauzer ps – 2 got með 13 hvolpum
Risaschnauzer og standardschnauzer svartur – ekkert got

Athugið að skráður litur á gotunum er samkvæmt lit móður í gagnagrunni Hrfí. Sum got fæðast í fleiri en einum lit og gefa þessar tölur ekki alveg rétta mynd af fjölda hvers litar. Til að fá nákvæmari upplýsingar er hægt að fletta upp í gagnagrunni HRFÍ – hundavefur.is


Innflutningur

1 standard schnauzer svartur
2 svartir dvergar
2 svart/silfur dvergar
6 pipar og salt dvergar
1 hvítur dvergur

 

 

Stigahæsti hundur og ræktandi

Stigahæsti hundur deildarinnar var Merkurlautar Pasco með 93 stig.

Stigahæsti ræktandi var Svartwalds ræktun með 91 stig.

 

Fyrir hönd stjórnar
Líney Björk Ívarsdóttir Björk Ívarsdóttir kolskeggs@