Fundargerðir


13.01.2025

Fundur stjórnar 13. janúar 2025 – Allir mættir

 

  • Uppskeran:
    Til að ná heiðrun og fá viðurkenningarskjal fyrir góðan árangur á sýningum þarf hundurinn að ná a.m.k. 20 stigum yfir árið.
    Ákveðið var að heiðra eftirfarandi:
    þrjá stigahæstu hunda deildarinnar
    þrjá stigahæstu í hverjum lit
    þrír stigahæstu ræktendurna.

Hvolpar verða ekki heiðraðir

Uppskeran verður á Kringlukránni 8. febrúar. Eigum eftir að fá matseðil og tilboð í drykki en þá verður sett inn auglýsing á deildarsíðu.

  • Deildarsýning 5. apríl:
    Vidar kemur 4. – 7. apríl. Verður á Skuggi hótel á Hverfisgötu. Lendir kl. 7 á föstudagsmorgninum og fer kl. 11 á mánudeginum. Verður síðustu nóttina á flughóteli.
  • Ath með aðra deildarsýningu 6. sept. Ath með Katarina í Danmörku
  • Aðalfundur:
    Ath með aðalfund 27. mars kl. 20. Ætlum að athuga með salinn í Dýrheimum.
    Muna að skýrsla stjórnar þarf að vera klár fyrir aðalfund og að ársfundir deilda þurfa að hafa farið fram fyrir 31. mars.

Ritari: Líney Björk Ívarsdóttir