Fundargerðir


01.08.2017

Fundur Stjórn schnauzerdeildar 1.8.17:

Haldin á Kaffi Meskí kl. 17:30

Mættar eru Margrét, María, Sigrún, Anna Kristín og Gróa

-Deildarsýning: Rætt um möguleika tengda deildarsýningu, hvort hún eigi að vera úti eða inni, og þá hvar. Einnig velt upp mögulegum dagsetningum og dómurum. Gróa tekur að sér að hafa samband við dómara.

-Rætt um augnskoðanir og breytingu á reglum þeim tengdum í öðrum löndum.

-Heimasíðan er hægt og rólega að komast í gang, höfum fengið nokkur tilmæli varðandi ýmis mál sem eru í vinnslu, þolinmæði nauðsynleg þar sem síðan er uppfærð í sjálfboðavinnu! Rætt um mögulega breytingu á uppröðun gota á síðunni miða við "gæði", heilsufarskoðanir, sýningarárangur, vinnuárangur og annað.

-Fundi slitið 18:45 Ritari Gróa Sturludóttir