Fundargerðir


08.01.2022

Fundur stjórnar. Allir mættir

Ekki búið að gera upp síðustu sýningu frá Hrfí

Erum komin með samþykki fyrir sýningunni í apríl. Dómari verður Leila Alec. Það á eftir að bóka fyrir hana flug og hótel. Sýningin verður í Blíðubakka, en búið er að setja nýtt efni á gólfið. Sýningin fer yfir tvo daga ef þarf. Þakið verður samt alltaf 160 hundar.

Fundum fljótlega aftur til að fara yfir síðustu sýningu.

Júlísýning: Sækja um tvöfalda sýningu þar sem dómarar verða: Birgit Bischof frá Þýskalandi og Kent Olsen frá Noregi. Dagsetning: 16. – 17. júlí. Dýrheimar verða styrktaraðilar sýningarinnar.

Athugum með securitas fyrir næturgæslu. Ath hjá Hrfí hvort þurfi gæslu og hvaða gæslu þeir eru vanir að nota.

Ritari: Líney Björk Ívarsdóttir