Fundargerðir
24.05.2018
Stjórnarfundur 24. maí 2018
mættar eru: Líney, Lára, María, Magga og Sigrún
- Farið yfir deildarsýninguna.
- Höllin kostaði 35.000 fyrir sýningu og tvær sýningarþjálfanir.
- Sýningin var gekk vel en það var kalt. Gólfið hefði mátt vera sléttara og aðeins hlýrra inni.
- Hundaheppni lánaði aðstöðuna sína fyrir námskeiðið sem haldið var deginum eftir sýninguna.
- Munum strax fara í það að skoða dagsetningu fyrir sýningu á næsta ári ásamt dómara.
- Stjórn mun ekki standa fyrir sýningarþjálfun fyrir júnísýninguna, en mun benda fólki á þjálfanir ungmennadeildar. Hvetjum einnig fólk til að æfa sig á Víðistaðatúni.
Fundi slitið
Ritari Líney Björk Ívarsdóttir